114/21RÚV - ÍÞRÓTTIR13:29
Fjögur rauð þegar Víkingur vann
Breiðablik

Víkingur lagði Breiðablik í Bestu deild
karla í fótbolta í kvöld. Leikið var á
Kópavogsvelli og kom Jónatan Guðni
Arnarsson Blikum yfir á 20. mínútu.
Mínútu síðar fékk Anton Logi Lúðvíksson
rautt spjald í liði Breiðabliks og undir
lok hálfleiksins fékk Ólafur Ingi
Skúlason, þjálfari liðsins, að fara sömu
leið. Einum fleiri komust Víkingar yfir
með mörkum frá Daníel Hafsteinssyni og
Sveini Margeiri Haukssyni.Á
lokamínútunni fengu svo Daníel og Ásgeir
Helgi Orrason, Bliki, rautt spjald þegar
upp úr sauð.Víkingar eru fyrir löngu
búnir að tryggja sér
Íslandsmeistaratitilinn en Breiðablik er
eftir tap kvöldsins með 36 stig í 4.
sæti.Víkingar nældu í 3 stig í kvöldRÚV
/ Mummi Lú

Birt: 16.10.2026 22:41
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA