114/5RÚV - ÍÞRÓTTIR13:27
Hvernig virkar blindratennis?

Í tilefni sjónverndarviku buðu
Sjónstöðin, Blindrfélagið og
Tennishöllin í Kópavogi almenningi að
kynnast tennis fyrir blinda og
sjónskerta í vikunni. Þetta er í fyrsta
sinn sem íþróttin er iðkuð á Íslandi og
Anna Sigrún Davíðsdóttir leit við og
kynnti sér málið.Íþróttin á uppruna sinn
að rekja til Japan á níunda áratugnum.
Markmiðið er að ná íþróttinni inn á
Paralympics leikana.Það heyrist í
hringlu í boltanum, sem er mýkri og
þyngri en hefðbundinn tennisbolti.
Völlurinn er aðeins minni en hefðbundinn
tennisvöllur og línurnar eru upphleyptar
til að keppendur finni fyrir þeim.Fjórir
flokkar eru til staðar eftir blindustigi
og má boltinn ýmist skoppa tvisvar eða
þrisvar eftir því hve mikil
sjónskerðingin er.Rætt er við Helga
Hjörvar, Þorkel Jóhann Steindal og
Wesley O'Brien um íþróttina.

Birt: 18.10.2026 17:43
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA