Arsenal unnu seiglusigur á velli sem þeir hafa verið í erfiðleikum með Arsenal vann 0-1 sigur gegn Nottingham Forest í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta rétt í þessu. Þar með heldur Arsenal pressu á Manchester City sem er enn með þriggja stiga forskot á Skytturnar í efsta sætinu.City er með 21 stig að sjö leikjum loknum og hefur unnið alla leiki sína. Arsenal er með 18 stig í öðru sæti.Foest er í 18. sæti með fimm stig og hefur átt erfitt uppdráttar í upphafi tímabils undir stjórn nýja þjálfarans Oliver Glasner.Noni kom til bjargarNoni Madueke skoraði eina mark leiksins. Hann kom inn á í hálfleik. Madueke keyrði á Daniel Munoz, tók nokkur skæri og tók svo snertingu inn að marki. Skot hans fór í brasilíska landsliðsmanninn Jair Cunha og þaðan í netið. Matz Sels í marki Forest var strandaður eftir að boltinn fór í Cunha.Leikurinn var afar lokaður. Eftir 70 mínútur hafði Arsenal ekki náð skoti á markrammann. Er það í fyrsta sinn frá október 2023 sem liðið nær ekki einu skoti á markið á fyrstu 70 mínútum leiksins.Erfiður völlurArsenal hefur átt erfitt uppdráttar á vellinum. Síðustu tveir leikir á City Ground hafa endað með markalausu jafntefli. Liðið vann síðast þar 1-2 sigur 30. janúar 2024. Það er eini sigur Arsenal í síðustu sex tilraunum.Þar á undan hafði Arsenal tapað þremur leikjum í röð. Birt: 18.10.2026 17:31 Heimild: RÚV Opna frumheimild < Aftur í fyrirsagnir
|