114/8RÚV - ÍÞRÓTTIR13:28
Blikar geta orðið Íslandsmeistarar á
morgun eftir tap FH

Breiðablik getur orðið Íslandsmeistari í
fótbolta á morgun eftir að FH tapaði 0-4
gegn Þrótti. Liðin mættust í hellidembu
í Kaplakrika í dag. FH þurfti sigur til
að knýja fram úrslitaleik gegn
Breiðablik næsta föstudag.Nú er
Breiðablik með þriggja stiga forskot
þegar liðið á tvo leiki til stefnu.
Kópavogskonum dugar stig gegn Stjörnunni
en liðin mætast klukkan 17:00 á
morgun.Leikið verður á
Stjörnuvelli.Gangur leiksinsSæunn
Björnsdóttir kom Þrótti yfir með
vítaspyrnu sem FH-ingar voru afar
ósáttir við. Markið kom á 19. mínútu.
Sierra Marie Lelii tvöfaldaði svo
forskotið á 36. mínútu. Staðan var því
0-2 í hálfleik.FH-ingar komu mun
ákveðnari út í seinni hálfleik en náðu
ekki að minnka muninn. Bríet Fjóla
Bjarnadóttir skoraði þriðja mark
Þróttara á 90. mínútu með skoti fyrir
utan teig.Kayla Marie Rollins slapp svo
ein í gegn og skoraði fjórða markið á
þriðju mínútu uppbótartímans.Fáum við
ekki úrslitaleikinn?Breiðablik var fyrir
daginn með þriggja stiga forskot þegar
tvær umferðir eru eftir. FH og
Breiðablik hafa verið að berjast um
toppsætið allt mótið. Hlutlausir
fótboltaáhugamenn voru orðnir spenntir
fyrir hreinum úrslitaleik á
föstudagskvöldið kemur. Síðasta tímabil
fengum við úrslitaleik milli Vals og
Breiðabliks árið 2024, en fyrirkomulagið
með úrslitakeppni efri og neðri hluta
býður upp á þettaFH varð síðast
Íslandsmeistari árið 1977 og varð það þá
fjórða árið í röð sem liðið vann
titilinn. Blikar hafa orðið
Íslandsmeistarar oftast allra, 20 sinnum
og síðast fyrir áriBreiðablik er vant
því að vera í toppbaráttunni en lið FH
hefur tekið stöðug skref fram á við
síðustu ár.Ef Breiðablik tapar á morgun
fáum við hreinan úrslitaleik um titilinn
á föstudaginn. Leikið verður á
Kópavogsvelli. Ljóst er að FH þarf sigur
en auk þess að vera með þremur stigum
færri en Blikar þá eru Blikar með +30 í
markatölu og FH nú +25.Athyglisverður
leiktímiLeikurinn hófst klukkan 11:00 í
morgun en honum var flýtt vegna veðurs.
FH-ingar hvöttu bæði kirkjuna og
eigendur skemmtistaða til að vinna með
sér. Þeir vildu að kirkjan sýndi
skilning á því að fólk myndi sleppa
guðsþjónustu þennan sunnudag og að
öldurhús Hafnarfjarðarbæjar myndu loka
fyrr í gærnótt.

Birt: 18.10.2026 12:58
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA