118/21NÝJAST FRÁ ÖLLUM13:30
Breiðablik getur unnið 21.
Íslandsmeistaratitilinn í dag

Breiðablik verður Íslandsmeistari kvenna
í fótbolta í 21. sinn nái liðið í
allavega eitt stig gegn Stjörnunni í
dag. Leikið er í Garðabæ og hefst
leikurinn kl. 17:00.Breiðablik er sem
stendur með þriggja stiga forskot á FH
en liðin hafa skipst á að verma toppsæti
Bestu deildarinnar í allt sumar. FH
tapaði 0-4 fyrir Þrótti á heimavelli í
gær og Hafnfirðingar þurfa nú að treysta
á Stjörnuna vilji liðið eiga möguleika á
fimmta Íslandsmeistaratitli sínum. Sá
síðasti kom 1976.Breiðablik og FH mætast
í lokaumferðinni á föstudag. Það leit
flest út fyrir að það yrði hreinn
úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn
en tvö töp hjá FH-ingum í síðustu þremur
leikjum hafa gert vonir þeirra
litlar.Auk þess að vera þremur stigum á
eftir Blikum eru þær með lakari
markatölu, +25 gegn +30 hjá Breiðabliki.
FH hefur þó skorað fleiri mörk og það
gæti skipt máli þegar deildin
klárast.Svona getur Íslandsmótið
klárast:Ef Breiðablik gerir jafntefli
gegn Stjörnunni í dag, eða vinnur, er
félagið orðið Íslandsmeistari þriðja
árið í röð.Ef Stjarnan vinnur með einu
eða tveimur mörkum í dag þarf FH að
vinna Breiðablik með tveimur mörkum á
föstudag til þess að hreppa titilinn.Ef
Stjarnan vinnur með þremur mörkum eða
meira þarf FH bara að vinna leikinn á
föstudag, markatalan yrði þeim þá alltaf
í hag.Stjarnan er sem stendur í sjötta
sæti en getur enn endað í því þriðja þar
sem einungis þremur stigum munar á ÍBV í
þriðja sæti og Garðbæingum.

Birt: 19.10.2026 12:31
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA